sunnudagur, október 22, 2006

VANDAMÁLATRÉÐ

Smiðurinn sem ég réð til að hjálpa mér að gera upp gamalt sveitabýli, hafði nýlokið erfiðum fyrsta degi í vinnunni.
Hann var klukkutíma of seinn í vinnuna vegna þess að það sprakk dekk á bílnum, rafmagnssögin hans gafst upp, og nú neitaði pallbíllinn hans að fara í gang.
Meðan ég keyrði hann heim, sat hann við hlið mér í steingerðri þögn.
Þegar við vorum komnir, bauð hann mér inn til að hitta fjölskylduna.
Þar sem við gengum að útidyrunum, stoppaði hann stuttlega við lítið tré og snerti trjágreinarnar með báðum höndum.
Eftir að hann opnaði hurðina, varð á honum undursamleg breyting. Sólbrúnt andlit hans rifnaði í brosi og hann faðmaði börnin sín tvö og kyssti konuna sína.
Seinna gekk hann með mér að bílnum mínum. Við gengum framhjá trénu og forvitnin náði tökum á mér.
Ég spurði hann um það sem ég hafði séð hann gera fyrr um kvöldið.
"Æ, þetta er vandamálatréð mitt," svaraði hann. "Ég veit að ég kemst ekki hjá vandamálum í vinnunni, en það er eitt sem víst er, að þau eiga ekki heima á heimili mínu hjá konu minni og börnum. Þannig að ég hengi þau á tréð þegar ég kem heim á kvöldin. Síðan tek ég þau aftur af trénu á morgnana."
"Það skrýtna er," sagði hann og brosti, "að þegar ég kem út á morgnana og tek þau upp, þá eru þau ekki næstum eins mörg og mig minnti að ég hefði hengt upp kvöldið áður."
Ókunnur höfundur.

Þetta er góður boðskapur sem ég rakst á. Hreiðrið á ekki að vera vettvangur vandamála heldur gróðurvin í eyðimörk.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Góð saga sem gott er tileinka sér :)

Kveðja
Bjössi + Eygló sæta

Íris sagði...

Sammála systur minni!!
Góður boðskapur!!

Íris sagði...

Elsku pabbi!!
Innilega til hamingju með daginn. Vona að hann verði þér rosa góður, kvöldið verður amk skemmtilegt ;)
Hlakka til í kvöld :D
Þín Íris