sunnudagur, janúar 14, 2007

14. janúar

Drottningin á bænum á afmæli í dag. Hún er eins og þjóð veit, alger gersemi í gegn. Hún er víst 37 ára í dag því hún breytti kennitölunni sinni fyrir nokkrum árum, úr árinu 1960 í 1970 sem er að hennar sögn afar sniðugur kostur fyrir konur á öllum aldri.

Ég held hún verði með heitt á könnunni fyrir þá sem nenna að gera sér ferð til okkar síðar í dag.

Elsku Erlan mín innilega til hamingju með daginn.
Þú ert gersemi.......!

4 ummæli:

Íris sagði...

Innilega til hamingju með hana mömmu! Hún er gersemi það er alveg rétt! Við fjölskyldan ætlum að nenna að gera okkur ferð til ykkar í dag ;)
Hlakka til að sjá ykkur!
Bumban ;)

Nafnlaus sagði...

Til haaamingju með hana mömmu! Já hún er algjört æði! Sniðugt hjá henni að breyta bara kennitölunni sinni.. (hugsa reyndar að ég geri það ekki strax þó það sé sniðugt á öllum aldri:))
Love you longtime
Hrund =)

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með drottninguna þína:):) Hún er alveg frábær. Og góðar veitingar hjá henni:):) Nammi, namm:) Arna

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með konuna þína :)
Bið að heilsa henni og allri fjölskyldunni. Sniðugt með kennitöluna, ég er að spá í að gera þetta líka.
Annars liggur kannski ekkert á því ég er bara tuttuguogfjórtán ára ennþá (Almar segir það að minnsta kosti) :)
kær kveðja
Hafrún frænka