Já nú er ég orðinn 50 ára. það er aldrei, hefði mamma sagt. Ég er himinlifandi með það, eiginlega í orðsins fyllstu. Það voru nú engar flugeldasýningar á afmælisdaginn. Það var mér að kenna þar sem ég vildi ekkert tilstand þótt tilefnið gæfi kannski ástæðu til þess. Við ætlum nefnilega að halda smá veislu núna í nóvember fyrir okkur bæði. Það hentar vel - ein veisla/tvöfaldar gjafir :0) En svona án gríns þá er stefnan að vera einhversstaðar á erlendri grund á afmælisdaginn hennar Erlu. Verst samt hvað henni leiðist alltaf svoleiðis.
Skólinn er alveg að kæfa mig núna. Endalaus verkefnavinna. Mál tekin fyrir sem eru í deiglunni hverju sinni. Búinn að taka fyrir sr. Gunnars málið, myntkörfulánin, morðmálið í Hafnarfirði í haust ofl ofl. Þetta gengur samt vel og ég er sáttur við að hafa drifið mig í mastersnámið í kreppunni.
Kreppan já, hún snertir víst flesta. það er dýrara að lifa, dýrara að greiða af lánum, keyra bílinn sinn o.fl. Hún bankar víða.
Ég er samt bjartsýnn. Mér finnst þeir menn sem smíðuðu þennan Icesavemonster nálgast að vera landráðamenn. Og ég er alls ekki sáttur við framgang þeirra sem núna stýra þjóðarskútunni. Icesave átti að fara fyrir dóm. Svo finnst mér algerlega ótækt að ríkisstjórnin skuli semja um greiðslu á þessari óráðsíu án þess að gæta til ítrasta, lagalegs réttar þjóðarinnar að þjóðarrétti. Þann rétt er búið að semja frá okkur. Það var hetjulegt.
Við Erlan njótum samt sem áður daganna. Þeir eru góðir.
föstudagur, október 30, 2009
þriðjudagur, október 13, 2009
Ekkert volæði núna
Ég var í Vola í gær ásamt Bjössa og Karlott. Nú veiddist..... setti smá pistil í veiðihornið hjá mér.
sunnudagur, október 11, 2009
Tilveran...
...er eins og veðrið. Það þjóta krappar lægðir yfir með stormum og stórsjóum... svo lygnir...!
sunnudagur, október 04, 2009
Allt fram streymir....
... endalaust, ár og dagar líða, nú er komið hrímkalt haust, horfin sumarblíða. Mér finnst nú frysta full fljótt þetta árið verð ég að segja. Við erum búin að fara einu sinni í bæinn í vetrarófærð.
Ég sem á eftir að fara í allavega eina veiðiferð. Ég er að vona að ég fái góðan dag í veiðina en sæmilegt hitastig getur gert útslagið.
Hvað sem haustinu líður þá fer vel um okkur hér í húsinu við ána. Það má segja að hver árstíð gæli við okkur á sinn hátt. Núna eru litir haustsins gríðarlega fallegir þó það verði fljótt að breytast héðan í frá. Veturinn fer að taka yfir.
Hér verður mikið líf og fjör í dag. Sláturdagurinn mikli er í dag. Ég keypti 20 slátur í fyrradag fyrir okkur og stelpurnar. Nú á að reyna að finna réttu samsetninguna með uppskrift sem ég fékk hjá Gerðu systir sem kemst sennilega næst því hvernig mamma gerði slátrið. Mamma var einstaklega lunkin við að gera bragðgóðan mat. Það var eins og hún hefði sérstakt innsæi í það hvernig blanda ætti saman hráefninu til að það bragðaðist vel.
Er ekki alveg frá því að það eymi af þeim hæfileika í genabankanum okkar systkinanna. Allavega eru systur mínar snjallir kokkar.
Ég hlakka til í kvöld en þá verður auðvitað sett upp slátur í pott og haldin uppskeruveisla.
Njótið daganna gott fólk.....
Ég sem á eftir að fara í allavega eina veiðiferð. Ég er að vona að ég fái góðan dag í veiðina en sæmilegt hitastig getur gert útslagið.
Hvað sem haustinu líður þá fer vel um okkur hér í húsinu við ána. Það má segja að hver árstíð gæli við okkur á sinn hátt. Núna eru litir haustsins gríðarlega fallegir þó það verði fljótt að breytast héðan í frá. Veturinn fer að taka yfir.
Hér verður mikið líf og fjör í dag. Sláturdagurinn mikli er í dag. Ég keypti 20 slátur í fyrradag fyrir okkur og stelpurnar. Nú á að reyna að finna réttu samsetninguna með uppskrift sem ég fékk hjá Gerðu systir sem kemst sennilega næst því hvernig mamma gerði slátrið. Mamma var einstaklega lunkin við að gera bragðgóðan mat. Það var eins og hún hefði sérstakt innsæi í það hvernig blanda ætti saman hráefninu til að það bragðaðist vel.
Er ekki alveg frá því að það eymi af þeim hæfileika í genabankanum okkar systkinanna. Allavega eru systur mínar snjallir kokkar.
Ég hlakka til í kvöld en þá verður auðvitað sett upp slátur í pott og haldin uppskeruveisla.
Njótið daganna gott fólk.....
fimmtudagur, september 24, 2009
Þar fór í verra
Ég, veiðiklóin sjálf, kom heim með öngulinn í rassinum. Á ekki við mig, en svona er veiðin, ekki alltaf á vísan að róa. Hlynur fékk tvo fiska, annar ágætur hinn lítill en Hansi fékk einn 12 punda urriða. Flottur fiskur - jafnstór mínum stærsta í fyrra. Ég á annan dag í haust sem vonandi gengur betur.
Þá er bara að venda nefinu ofan í bækurnar aftur.
:0)
Þá er bara að venda nefinu ofan í bækurnar aftur.
:0)
þriðjudagur, september 22, 2009
Volinn á morgun
YYYYhaaaa.
Loksins að maður kemst í veiði. Hef verið langt frá mínu besta í sumar. Er að vonast eftir góðri veiði. Set inn myndir af aflanum ef þannig verkast.
Loksins að maður kemst í veiði. Hef verið langt frá mínu besta í sumar. Er að vonast eftir góðri veiði. Set inn myndir af aflanum ef þannig verkast.
sunnudagur, september 06, 2009
Enn að fjallabaki...
Fjöllin heilla okkur Erluna meira en margt annað. Það er gaman að ganga á fjöll. Við byrjuðum á því í vor og höfum gengið á nokkra tinda í sumar. Það er líka gríðarlega gaman að ferðast um íslenska hálendið og skoða þann fjölbreytileika sem þar er að finna. Við fórum í gær með stóran hóp með okkur um Syðri fjallabaksleið að Hungurfit og þaðan suður Fljótshlíðar afrétt.Það leit ekki vel út með veður fram eftir vikunni en rættist úr og við fengum flott veður í ferðinni.
Við stoppuðum oft við hina og þessa staðina sem vert var að skoða betur en unnt er út um bílgluggann og vegna litla mannfólksins sem var með í för, þau þurfa að hreyfa sig.
Ég held að það sé börnunum afar hollt og nauðsynlegt að fá að kynnast Íslandi "eins og það kemur af kúnni" það kemur kannski í veg fyrir að þau búi sér til of neikvæða mynd af landinu sínu, sem mótast af endalausum neikvæðum fréttaflutningi.Ævintýrin gerast í svona ferðum og brekkurnar verða stundum of brattar. Þá getur verið gott að vera ekki einbíla. Við lentum í ýmiskonar skemmtilegheitum, vöð yfir grýttar ár, klettaklungur þar sem er mjög þröngt og erfitt að koma bíl í gegn, brattar brekkur o.fl. Svona kryddar bara ferðirnar.
Ég heyri af dætrum mínum hvað ferðir þeirra um landið á uppvaxtarárunum hefur haft mikil áhrif á þær, og skapað góðar minningar.
Ferðin í gær var eins og endranær, skemmtileg og nærandi. Bæði var samfélagið við fólkið okkar afar gott og svo virðist landið okkar búa yfir þeim einstöku töfrum að næra sálina og skapa vellíðan þegar maður á samfélag við það.
Góð ferð, í góðra vina hópi, um fallegasta land veraldar - er hægt að biðja um meira?
mánudagur, ágúst 31, 2009
4. fjallið í sumar
Við vorum á Föðurlandi um helgina. Veðrið var snilldargott, miklu líkara júlíveðri en lokágústveðri. Við gengum á Þórólfsfell á laugardaginn. Það var heitt, en sem betur fer strekkings vindur. Útsýnið þarna uppi er alveg stórkostlegt. Við sátum í slakkanum á efsta tindinum sunnan megin með nestið okkar og nutum útsýnisins. Þórsmörk virðist ekki langt í burtu svona ofan frá séð. Eins sáum við inn á Fimmvörðuháls. Jökullónið í enda Gígjökuls sást vel og Eyjafjallajökull var eins og konungur í suðri, Mýrdalsjökull gnæfði í austri og Tindfjallajökull í norðri. Maður fyllist lotningu á svona stundum, sköpunin engu lík. Nesti bragðast líka aldrei eins vel og eftir góða fjallgöngu, það er ég búinn að finna út.Sunnudagsmorguninn var einstaklega fallegur og hlýr. Algert stillilogn og sól í heiði. Pallurinn varð fyrir valinu þegar við snæddum morgunmat og svo létum við okkur líða vel fram eftir degi, fólk kom til okkar og við heimsóttum fólk í næstu bústöðum... indælt og gott.
Við eigum allavega eina fjallgöngu eftir þetta sumar. Það er nágranni okkar Ingólfsfjall. Næsta góðviðrisdag sem við erum heima verður lagt í hann.
Hafið það gott vinir.
þriðjudagur, ágúst 18, 2009
Að fjallabaki og fleira
Það líður að skóla. Morgundagurinn í vinnu og svo hefst maraþonið enn einu sinni. Það vill til að tíminn líður hratt þegar mikið er að gera. það verður komið vor aftur áður en maður getur snúið sér við. Ég skal hins vegar viðurkenna fúslega að ég hlakka til þegar ég verð fullnuma með ML gráðu.
Það sem ég ætlaði að gera með þessum pistli er að efna loforð síðasta pistils. Við fórum í dagsferð um fjallabak. Fjallabaksleiðirnar eru tvær, nyrðri og syðri. Við slógum tvær flugur í einu höggi og fórum báðar. Fyrst keyrðum við um Dómadalsleið til Landmannalauga. Við skoðuðum Landmannahelli og Ljótapoll á þeirri leið ásamt endalausri fegurð íslenskra fjalla.
Þaðan fórum við að Eldgjá og gengum inn að Ófærufossi. Þeim sama og ég málaði mynd af fyrir 30 árum og hefur hangið í stofunni okkar, alla okkar búskapartíð.
Það var virkilega gaman að koma þangað og líta fossinn augum.
Niður í Emstrur komum við svo, þar fórum við yfir Bláfjallakvísl sem var orðin þó nokkuð fljót. Svo komum við niður í Fljótshlíð klukkan að ganga tíu. Gilsáin var þá bara eftir sem okkur þótti eiginlega barnaleikur eftir hinar árnar.
Ég set smá myndasýnishorn hér inn, en við tókum á fjórða hundrað myndir :0)
Það sem ég ætlaði að gera með þessum pistli er að efna loforð síðasta pistils. Við fórum í dagsferð um fjallabak. Fjallabaksleiðirnar eru tvær, nyrðri og syðri. Við slógum tvær flugur í einu höggi og fórum báðar. Fyrst keyrðum við um Dómadalsleið til Landmannalauga. Við skoðuðum Landmannahelli og Ljótapoll á þeirri leið ásamt endalausri fegurð íslenskra fjalla.hafi úthlutað þessu svæði litadýrð og náttúrufegurð af meiri rausn en annarsstaðar, og er þó af miklu að taka.
Þaðan fórum við að Eldgjá og gengum inn að Ófærufossi. Þeim sama og ég málaði mynd af fyrir 30 árum og hefur hangið í stofunni okkar, alla okkar búskapartíð.Það var virkilega gaman að koma þangað og líta fossinn augum.
Umhverfið var aðeins öðruvísi en ég gerði ráð fyrir. Ekki að það væri ljótara heldur kom á óvart að fossinn væri ekki í enda Eldgjár heldur kemur hann þvert á gjána. Verst að steinboginn skyldi hrynja, það er sjónarsviptir af honum. Samt gríðarlega falleg náttúrusmíð.
Svo fórum við áleiðis í Skáftártungu en ákváðum á leiðinni þangað að fara Álftavatnaleið inná syðri fjallabaksleið. Það er 20 km. vegalengd og yfir eitt djúpt vað að fara, Syðri ófæru. Það gekk allt vel og við komum niður á syðri leiðina við Hólmsá sem er annað djúpt vað. Þaðan fórum við svo yfir Mælifellssand um endalausar jökulsársprænur því það var orðið áliðið, en þá hækkar í öllum jökulám. Þar er ekið eftir stikum um sandinn til að forðast sandbleytur.
Niður í Emstrur komum við svo, þar fórum við yfir Bláfjallakvísl sem var orðin þó nokkuð fljót. Svo komum við niður í Fljótshlíð klukkan að ganga tíu. Gilsáin var þá bara eftir sem okkur þótti eiginlega barnaleikur eftir hinar árnar. Hér er Erlan við bílinn eftir svaðilfarir dagsins. Bláfjallakvíslin náði upp að listum á hurðunum.
Við vorum himinlifandi með ferðina enda bæði forfallnir ferðaidjótar, sérstaklega um fjalllendi. Svo ánægð að við tókum þá ákvörðun að endurtaka þessa ferð að ári og bjóða þeim sem hafa áhuga á, að slást í för með okkur. Eina sem til þarf er áhugi og jeppi......!
Oft varð okkur að orði þegar fegurð fjallanna snerti innra með okkur viðkvæma föðurlandsstrengi, hvort eitthvað væri til fallegra en landið okkar.
Oft varð okkur að orði þegar fegurð fjallanna snerti innra með okkur viðkvæma föðurlandsstrengi, hvort eitthvað væri til fallegra en landið okkar.
Ég set smá myndasýnishorn hér inn, en við tókum á fjórða hundrað myndir :0)
Svo eru nokkrar komnar inn á Flickr....
föstudagur, ágúst 14, 2009
Tæknivæðing
Hún ríður ekki við einteyming tæknin. Ég sit hér í bústaðnum og var að skoða veðurlýsingar á veraldarvefnum af leiðinni sem við förum í dag, Landmannalaugar og svæðið þar í kring. Við erum að tygja okkur af stað og munum eyða deginum í ferðalag um hálendið. Ég á von á skemmtilegum degi. Hendi inn myndum þegar tækifæri gefst.
laugardagur, ágúst 08, 2009
Frí...
Vikulangt frí er framundan hjá okkur Erlunni. Við ætlum að eiga náðuga daga hér heima og í kofanum. Það er bæjarhátíð hér á Selfossi í dag og á morgun "Sumar á Selfossi". Ýmislegt forvitnilegt sem við ætlum að sjá og taka þátt í m.a. listflug, götugrill, útimessa, kraftakeppni sterkustu manna íslands (ég tek auðvitað þátt), sléttusöngur (Árni Johnsen) flugeldasýning o.fl. Einnig er hugmyndin að skreppa upp í Sólheima í Grímsnesi á markað sem íbúar þar halda. Þar er til sölu allskyns grænmeti ræktað á staðnum og handavinna íbúanna sem flestir eru fatlaðir. Þetta verður svona letidagur með ýmsum uppákomum.
Svo tók ég villigæs úr frystinum til að elda í kvöld. Okkur áskotnuðust nokkrar gæsir frá einum af viðskiptavinum bókhaldsstofunnar sem Erla vinnur hjá. Ekki amalegt það. Villigæs er eitt það besta sem inn fyrir mínar varir kemur. Ætla að reyna að vanda mig við matseldina.
Einhverntíman í vikunni ætlum við svo að fara í ferðalag austur að Jökulsárlóni og hugsanlega gista í Skaftafelli.... í tjaldi. Það höfum við ekki gert í mörg ár. Veðrið ræður deginum sem við förum, svoleiðis er Ísland.
Það er góð tilhugsun að eiga þessa daga framundan.
Rétt að athuga hvort Erlan sé ekkert að rumska á þessum fallega en blauta laugardagmorgni. Nýmalað kaffi hlýtur að hafa vekjandi áhrif.
Þetta var örfrétt héðan af árbakkanum.
Njótið daganna gott fólk.
Svo tók ég villigæs úr frystinum til að elda í kvöld. Okkur áskotnuðust nokkrar gæsir frá einum af viðskiptavinum bókhaldsstofunnar sem Erla vinnur hjá. Ekki amalegt það. Villigæs er eitt það besta sem inn fyrir mínar varir kemur. Ætla að reyna að vanda mig við matseldina.
Einhverntíman í vikunni ætlum við svo að fara í ferðalag austur að Jökulsárlóni og hugsanlega gista í Skaftafelli.... í tjaldi. Það höfum við ekki gert í mörg ár. Veðrið ræður deginum sem við förum, svoleiðis er Ísland.
Það er góð tilhugsun að eiga þessa daga framundan.
Rétt að athuga hvort Erlan sé ekkert að rumska á þessum fallega en blauta laugardagmorgni. Nýmalað kaffi hlýtur að hafa vekjandi áhrif.
Þetta var örfrétt héðan af árbakkanum.
Njótið daganna gott fólk.
miðvikudagur, ágúst 05, 2009
Verslunarmannahelgin.....
Þá finnst manni alltaf að sumarið sé á lokasprettinum og haustið handan hornsins. Enda er það víst svo, allavega eru ekki nema tvær vikur þangað til að ég sest á skólabekkinn einu sinni enn.Við áttum afar góða helgi í faðmi fjölskyldu og vina. Dæturnar og þeirra fólk var með okkur á Föðurlandi allan tímann.
Á laugardagseftirmiðdaginn og fram á nótt var haldið ættargrill hjá okkur. Það var fjölmennt, flestir komu þrátt fyrir tilkynningar okkar um að hugsanlega gætu nokkrar litlar dömur verið svínaflesnusmitberar. Flestir létu sér fátt um finnast og mættu í grillið, enda hægt að smitast hvar sem er ef því er að skipta. Snúllurnar eru ekki enn veikar svo hugsanleg hræðsla var óþörf.
Pallurinn milli húsanna sem ég hafði tjaldað yfir rúmaði nánast allan hópinn sem var snilld því nándin þjappaði fólkinu saman. Eftir matinn kveiktum við svo lítinn varðeld í lautinni fyrir framan húsin. Þar voru svo sungin ættjarðarlög fram á nótt við harmoniku undirleik Sigga hennar Gerðu. Þetta var notalegt og nærandi samfélag.Á sunnudeginum kom svo ættleggur Erlu. Tilefnið var að kveðja Tedda og Kötu sem eru að flytja til Danmerkur. Þar grillaði hver með sínu nefi, afraksturinn lagður á stórt borð og svo fékk fólk sér það sem því leist best á. Þessi grillveisla stóð styttra en kvöldið áður enda fólkið upptekið á Kotmóti og tilefnið annað.
Mánudagurinn var líka góður. Þá var keyrt inn í Fljótshlíð með nesti og nýja skó. Við stoppuðum víða, skoðuðum Gluggafoss og fleiri staði. Enduðum svo í Þorsteinslundi þar sem farið var í leiki með yngsta fólkinu og borðað nesti.Það eru forréttindi að geta átt svona gott og gefandi samfélag við fólkið sitt. Ég lít á það sem mín mestu auðævi.
Við kíktum á Kotmót. Það fangaði athygli mína að flytja átti sögu kotmóta í máli og myndum. Það var virkilega skemmtilegt að sjá og heyra. Afi og amma eru frumkvöðlar að því starfi sem fer fram í Kotinu. Sagan var lifandi og skemmtileg.
Góð helgi að baki - vinna framundan - smá frí, og svo.....skólinn.
þriðjudagur, júlí 21, 2009
E S J A N............
Við létum loksins verða af því að klifra upp á Esjuna. Ég verð að viðurkenna að hún er hærri en mig minnti (læt líta út að ég hafi farið áður) ok, hærri, en ég hélt. Við fórum með Írisi og Karlott. Það var virkilega gaman að fara upp. Það tók á. Við erum samt að taka okkur á í hreyfingarmálum og hollustunni. Enda má segja að árin krefjist þess og... skólinn, maður situr svo mikið orðið við lestur.Næst er það nágranni okkar Ingólfsfjall. Það er nú mun lægra en Esjan svo það ætti ekki að verða svo erfitt.
.....Svo er það Þórisvatnið á miðvikudaginn að kitla veiðitaugarnar. Já lífið er ljúft. Ég verð að henda inn eins og einni mynd af frúnni á Esjutoppnum.... til að sanna mál mitt.
þriðjudagur, júlí 14, 2009
Þríhyrningur og fleira
Vinnuhelgin varð að göngu- og ferðalagahelgi. Við fórum á Þríhyrning með þremur stelpnanna okkar, Eygló Örnu og Hrund. Það var gaman að koma upp einu sinni enn og gaman að skoða gamlar slóðir. Minningar á hverri þúfu nánast. Margt er breytt frá fyrri tíð, sumt til hins betra en sumt í hina áttina. Það er skaði að Kirkjulækjarkots jörðin skuli vera orðin svona uppskipt eins og hún er. Fyrst er safnaðarparturinn sem gefinn var á sínum tíma af bræðrunum í Kotinu. Svo tekur við land sem Veddi eignaðist fyrir allmörgum árum á uppboði, hluti Kotjarðarinnar. Blettir hér og þar. Hinrik náði til sín stærsta hluta túnanna sem Ninni átti. Svona má lengi telja. Ekki nutu þeir bræðurnir mikils af verðmæti jarðarinnar. Gefið eða selt fyrir einhver lambsverð.Það var fegursta veður og hitinn mikill. Hitinn var ekki sérlegur vinur okkar á leiðinni upp á fjallið. Það var nánast logn og ef hreyfði vind var hann heitur eins og maður á að venjast miklu sunnar á hnettinum. Við fórum samt alla leið á toppinn. Hitamistur aftraði útsýni svo ekki sást eins vítt og venjulega. Það var með sérlegri nautn sem við snæddum samlokur á toppnum. Ekki laust við að þær væru orðnar takmark í sjálfu sér eftir því sem ofar dró.
Við fylltum allar flöskur af lindarvatni úr "lindinni" uppi á brúnum og drukkum það á leiðinni. Það er að sögn besta vatn sem fyrirfinnst. Ískalt beint úr jörðinni og sérlega bragðgott.
Heimleiðin var nokkuð löng enda eiginlega of heitt til að vera að ganga mikið. Það var gott að komast í bílinn og lofa honum að bera okkur síðasta spölinn á Föðurland.
Þar var svo samvera dagsins innsigluð með góðum grillmat sem Karlott og Íris sáu um að mestu.
Gott, hessandi og..... virkilega gaman.
Ísland er óumræðilega fallegt land, gjöfult og gott.
föstudagur, júlí 10, 2009
Labb
Við erum að tygja okkur af stað í Föðurland. Vinnuhelgi, þar sem verður málað og smíðað. Á morgun á svo að leggja í fjallaferð. Þríhyrningur verður klifinn. Hann er alltaf "fjallið okkar" einhvernveginn, þótt við eigum ekki meira í honum en aðrir. Það er formið og nándin sem við höfum eignað okkur.
Brottför er árla morguns til að hafa síðdegið til afslöppunar í sólinni sem er spáð um helgina. það spáir bongóbongó blíðu.
Njótið daganna vinir.....
Brottför er árla morguns til að hafa síðdegið til afslöppunar í sólinni sem er spáð um helgina. það spáir bongóbongó blíðu.
Njótið daganna vinir.....
sunnudagur, júlí 05, 2009
Miðsumar á Ölfusárbökkum
Það hefur verið eindæma gott veður undanfarna daga. Hitastigið hefur verið um og yfir 20 stig flesta daga. Hér á bökkum Ölfusár dansar tilveran vangadans við okkur eins og venjulega. Við vorum í sumarfríi vikuna eftir að við komum frá Danmörku. Dvöldum sitt á hvað hér á bökkunum og á Föðurlandi. Ég seldi mótorfákinn norður í land. Það er auðvitað leiðinlegt að geta ekki farið í útreiðatúr á fallegum degi lengur en svona er tilveran. Hjólið verður "borðað" í vetur með skólanum. Þetta er auðvitað einn liður í að fjármagna skólann....meira í veskið og minna að borga...!
Við Erlan erum svo lánsöm að eiga góða og trausta vini. Við eyddum föstudagskvöldinu í góðra matarklúbbs vina hópi. Við erum öll matgæðingar og kunnum vel að njóta góðs matar. Smjörsteiktur humar í hvítlauk og nýbakað brauð með sterkri hvítlaukssósu var frábær forréttur og svo nautalund með öllu tilheyrandi í aðalrétt og karamelluterta í eftirrétt. Svolítið 2007 en samt ekki dýrt þegar bara hráefnið er keypt en ekki er verið að borga fyrir eldamennsku og þjónustu.
Í dag eigum við von á afkomendum okkar hingað í húsið við ána. Dæturnar koma oft hingað með sitt fríða föruneyti. Það er ég ánægður með. Hef enda stefnt að því leynt og ljóst öll árin að heimilið okkar yrði fastur punktur í tilveru afkomenda okkar. Það eru of oft vanmetin gildi að halda fjölskyldunni þétt saman.
Nágrannar okkar Nína og Geiri hafa ekki haft erindi sem erfiði. Varpið misfórst hjá þeim. Ég veit ekki hvað kom fyrir en þau hættu allt í einu að liggja á hreiðrinu án þess að ungar væru komnir út. Í marga daga komu þau samt á hverjum degi undir miðnættið og annað þeirra lagðist á hreiðrið. Þau eru samt ungalaus og virðast frekar friðlaus og sorgmædd greyin.
Erlan er uppi á efri hæðinni að lesa bók. Ég ætla að láta renna í tvo bolla af kaffi og athuga hvort ég næ henni niður.
Límsófinn heillar hana oft, sérstaklega ef ég beiti kaffi á krókinn líka.
Við Erlan erum svo lánsöm að eiga góða og trausta vini. Við eyddum föstudagskvöldinu í góðra matarklúbbs vina hópi. Við erum öll matgæðingar og kunnum vel að njóta góðs matar. Smjörsteiktur humar í hvítlauk og nýbakað brauð með sterkri hvítlaukssósu var frábær forréttur og svo nautalund með öllu tilheyrandi í aðalrétt og karamelluterta í eftirrétt. Svolítið 2007 en samt ekki dýrt þegar bara hráefnið er keypt en ekki er verið að borga fyrir eldamennsku og þjónustu.
Í dag eigum við von á afkomendum okkar hingað í húsið við ána. Dæturnar koma oft hingað með sitt fríða föruneyti. Það er ég ánægður með. Hef enda stefnt að því leynt og ljóst öll árin að heimilið okkar yrði fastur punktur í tilveru afkomenda okkar. Það eru of oft vanmetin gildi að halda fjölskyldunni þétt saman.
Nágrannar okkar Nína og Geiri hafa ekki haft erindi sem erfiði. Varpið misfórst hjá þeim. Ég veit ekki hvað kom fyrir en þau hættu allt í einu að liggja á hreiðrinu án þess að ungar væru komnir út. Í marga daga komu þau samt á hverjum degi undir miðnættið og annað þeirra lagðist á hreiðrið. Þau eru samt ungalaus og virðast frekar friðlaus og sorgmædd greyin.
Erlan er uppi á efri hæðinni að lesa bók. Ég ætla að láta renna í tvo bolla af kaffi og athuga hvort ég næ henni niður.
Límsófinn heillar hana oft, sérstaklega ef ég beiti kaffi á krókinn líka.
þriðjudagur, júní 23, 2009
Heima
Við erum komin heim eftir tæpa vikuferð í Danmörku. Ferðin var í alla staði góð. Við byrjuðum á Kaupmannahöfn.... það var öðruvísi en venjulega. Reyndar er Köben eins og hún er vön að vera. Við hinsvegar vorum með krónur sem við þurftum að kaupa á uppsprengdu verði. 25 kall fyrir dönsku krónuna er eitthvað sem varla var til í ævintýrabókum fyrir hrun. Hvað þá í veruleikanum. Þetta gerði að verkum að allt var svimandi fáránlega dýrt.
Við svo sem þurftum ekki að kaupa neitt nema eitthvað í magann. Svo buddan fann ekki mikið fyrir því. Það voru ekki mjög fallegar hugsanir sem við sendum landráðamönnunum sem settu landið okkar á hausinn og gerðu þetta að verkum að ekki er hægt að vera þarna lengur.Dvölin hjá Óla og Annette var góð eins og við var að búast. Við fórum í göngutúra vítt og breytt keyrðum til Skagen sem er nyrsti hluti Jótlands í blíðuveðri. Þar fundum við pálmaströnd.... Við sem héldum að við værum í Danmörku.
Svo heimsóttum við foreldra Annette að Stenum. Pabbi hennar er fárveikur með krabbamein, honum er hjúkrað heima, bæði af þessari dugnaðarkonu mömmu hennar og svo kemur hjúkrunarfólk heim. Krabbamein er óþverrasjúkdómur sem allt of margir falla fyrir.
Þar á bæ fengum við heilan þvottabala af jarðarberjum...... nýtýnd stór og eldrauð.... Það var svo jarðarberjaveisla þegar heim var komið. Ég skil ekki hvers vegna maður fær ekki svona góð jarðarber hér heima. Reyndar verður að segjast eins og er að jarðarberin úr garðinum okkar eru jafngóð á bragðið en ekki eins stór. Veðrið var líkara Spáni... annað slagið. Við náðum að sólbrenna aðeins, áttum ekki von á svona sólarveðri. Brúni liturinn er annars fljótur að renna af manni í rigningunni.
Danmörk er góð heim að sækja og fólkið okkar þar er enn betra. Það er samt alltaf gott að koma heim. Ég er svoddan þjóðernisremba að í hvert sinn sem ég kem fljúgandi heim frá útlöndum og sé landið mitt, finn ég til einhverrar þjóðerniskenndar sem snertir viðkvæma strengi innra og ég finn hvað landið er mér kært.
Já, Ísland er landið - því aldrei ég gleymi.
föstudagur, júní 19, 2009
God dag
Og nu er vi i Støvring hos Oli og Annette....og höfum það svona stórgott. Það er búið að vera frábært veður í ferðinni. Við löbbuðum mikið í Kaupmannahöfn, fórum á nýja staði sem við höfum ekki komið á áður, mjög gaman. Við flugum hingað yfir til Álaborgar. Það var þægilegt, tók bara 25 mínútur, þotan fór bara upp og strax niður aftur. Við fórum til Silkiborgar í gær með Óla. Hann átti vinnutengt erindi þangað. Við keyrðum svo þar um meðan hann fundaði eitthvað.
Í morgun vöknuðum við við mikinn gauragang, þrumur og eldingar. Ég hafði gaman að því, og ég held Erlan bara líka.
Verðlagið hér er engu líkt. Gengið er 25 krónur á dönsku krónunni. Sem dæmi keypti ég sitthvorn kaffibollann handa okkur fyrir 1250 krónur. Ein pylsa og kók kostar líka 1250 krónur. Það er furðulegt að hafa á tilfinningunni að hafa verið rændur eftir að hafa keypt eina pulsu...
Við ætlum í búðir í dag... :0) Loksins að maður fær að kíkja aðeins í búðarskammirnar.
Hafið það gott vinir mínir heima..... Ég þrauka daginn, það er áralöng reynsla fyrir því.
Í morgun vöknuðum við við mikinn gauragang, þrumur og eldingar. Ég hafði gaman að því, og ég held Erlan bara líka.
Verðlagið hér er engu líkt. Gengið er 25 krónur á dönsku krónunni. Sem dæmi keypti ég sitthvorn kaffibollann handa okkur fyrir 1250 krónur. Ein pylsa og kók kostar líka 1250 krónur. Það er furðulegt að hafa á tilfinningunni að hafa verið rændur eftir að hafa keypt eina pulsu...
Við ætlum í búðir í dag... :0) Loksins að maður fær að kíkja aðeins í búðarskammirnar.
Hafið það gott vinir mínir heima..... Ég þrauka daginn, það er áralöng reynsla fyrir því.
mánudagur, júní 15, 2009
Danmörk
Það verður flogið til Kongens Köben í fyrramálið. Þetta er ferðin sem við hættum við fyrir jólin í fyrra. Þá var gengið svo svimandi hátt á dönsku krónunni að okkur fannst ekki verjandi að fara. Við áttum flugmiðana áfram og seinkuðum ferðinni fram í júní og vonuðum að gengið yrði skárra. Núna er gengið ennþá hátt, en ferðin endurskipulögð. Við heimsækjum Óla og Annette.
Það er tilhlökkun í okkur. Danmörk hefur alltaf heillað okkur. Það verður gaman að eyða tíma með þeim heiðurshjónum.
Farið vel með ykkur á meðan lesendur góðir.....
Það er tilhlökkun í okkur. Danmörk hefur alltaf heillað okkur. Það verður gaman að eyða tíma með þeim heiðurshjónum.
Farið vel með ykkur á meðan lesendur góðir.....
laugardagur, júní 13, 2009
Morgunþanki
Yndislegasti tími ársins er runninn upp. Hér sit ég einn og sötra kaffið mitt og horfi út um eldhúsgluggann. Frúin á bænum sefur enn, enda í sumarfríi. Náttúran er iðjagræn og falleg. Ég sat hér, fyrir svo undarlega stuttu síðan og horfði á frostkalda ána bera fram íshröngl og klakastykki og jörðina frosna í frerahrammi. Einstaka hrafn flögrandi framhjá, gargandi og svangur, í leit að æti. Þá hugsaði ég til vorsins með tilhlökkun. Vorsins, þá lifnar allt, þá verður nóg að éta fyrir hrafninn, þá koma Nína og Geiri í hólmann.... Núna finnst mér eins og ég hafi hugsað þetta í gær, tíminn líður afkáralega hratt. Haustið verður komið áður en við verður litið. Þá fer græni liturinn að dofna, laufin að taka á sig annan blæ. Græni liturinn núna, rétt eins eins og haustlitirnir, minna á hið óumflýjanlega, hversu tíminn heldur áfram róli sínu hvað sem öðru líður og hjól endurtekninganna snýst áfram, hring eftir hring. Ævi mannsins er ekki svo margir hringir. Afar mínir og ömmur eru löngu horfin, sömuleiðis pabbi og mamma. Ótrúlega mikið rétt hvað við erum eins og stráið sem vex upp að vori og fellur að hausti.Að gleðjast yfir lífinu eins og það kemur manni fyrir sjónir er gæfa. Að kunna að sjá fegurðina í kringum mann þrátt fyrir krepputíma, er hamingja. Ég horfði hugfanginn á álftina hér í hólmanum verja óðalið sitt. Náttúran er óvægin. Gæsapar með unga hafði villst inn fyrir landamerkin. Það þýddi árás sem endaði með dauða eins ungans. Stórbrotið og óvægið. Ég tók líka eftir dansi fiðrildanna í blágresinu og fylgdist með suði fiskiflugunnar sem svo gjarnan fylgir heitum sólardögum, þau lifa ekki veturinn. þetta er lífskúnst. Góð tilhugsun að vera ekki fiðrildi, það væri sönn kreppa. Lífið er gott, það er gjöf sem varir of stutt til að láta allt það góða sem við götuna liggur, fram hjá okkur fara.
Annað er aum mistök.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
